Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 12.umferð fari í Olís deild karla. KA – HK (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: KA KA hefur átt frábæru gengi að fagna undanfarið og unnu nágranna sína í Þór um síðustu helgi. HK hefur fengið gott frí eftir að hafa setið hjá í síðustu umferð þar sem Valur var á sínum Evrópurúnt. Þrátt fyrir gott frí þá munu HK eiga virkilega erfiðan leik fyrir höndum þar sem KA eru erfiðir heim að sækja og þeir munu því klára þennan leik nokkuð þægilega. Stóra spurningin er, sjáum við Andrew Wisman? Þór - Fram (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Fram Víkingur - Afturelding (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Afturelding Valur - Selfoss (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur Valsarar loksins komnir heim úr interrailinu sínu og fá Selfyssinga í heimsókn sem eru ennþá að leita af sínum fyrsta sigri. Frábær leikur fyrir Valsara ef þeir eru með einhverja ferðaþreytu og ættu Selfyssingar ekki að vera mikil fyrirstaða fyrir Valsmenn sem klára þennan leik þægilega. Stjarnan – FH (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: FH Lokaleikur umferðarinnar þegar Stjörumenn fá til sín nágranna sína í FH. Þetta hafa alltaf verið jafnir og spennandi leikir og held ég að það verði engin breyting á því á laugardaginn. Stjarnan náði aði fjarlægja sig botni deildinnar með góðum sigri á Selfoss í síðustu umferð meðan FH hefur ekki látið Evrópukeppnina trufla sig neitt í deildinni. Þeir fara í Garðabæinn og vinna Stjörnuna á endanum eftir jafnan og spennandi leik með þrem mörkum. 1.umferð (6 réttir)
Þórsara hafa verið í miklu basli undanfarið í deildinni meðan Fram er að finna mojo-ið sitt aftur eftir erfitt gengi á haustmánuðum. Þetta mun vera hörkuleikur sem bæði lið telja sig geta unnið fyrirfram en ég held að Fram haldi áfram sínu góða gengi og vinni sinn þriðja leik í röð.
Afturelding þurfti rúma 2 sólarhringa til að klára Víkinga síðast þegar liðin mættust svo vonandi mun þessi leikur taka styttri tíma. Víkingar byrjuðu leik þessara liða í fyrstu umferð hrikalega illa svo það hlýtur að vera fyrsta verk Aðalsteins að láta sína menn mæta klára til leiks. Takist það munu Víkinga gefa Aftureldingu leik en það mun þó ekki duga að þessu sinni og Mosfellingar taka bæði stigin heim á föstudaginn.
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)
7.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
9. umferð (4 réttir)
10. umferð (4 réttir)
11.umferð (5 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.