
Stjarnan (Sævar Jónasson)
Stjörnumenn tóku á móti spræku liði Þórs, sem berst fyrir tilverurétti sínum í deildinni um þessar mundir, í Garðabænum í kvöld. Þórsarar voru strax sterkari og voru fljótt komnir 4 mörkum yfir 2-6. Stjarnan sem er í allskonar vandræðum eftir meiðsli nokkurra lykilleikmanna voru í erfiðleikum frá fyrstu mínútu. Þetta eru rosalega mikilvæg stig fyrir Þórsara í baráttu sinni fyrir botni deildarinnar en Stjarnan gætu verið að dragast niður í botnbáráttu. Oddur Grétarsson var allt í öllu í liði Þórs og skoraði hann 11 mörk úr 12 skotum. Benedikt Marinó Herdísarson var markahæstur í liði Stjörnunnar með 6 mörk. Adam Thorsteinson átti góðan leik í marki Stjörnunnar með 35% markvörslu en það dugði því miður skammt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.