Benedikt Marínó Herdísarson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Selfoss vann sinn annan útisigur í Olís-deild karla á tímabilinu þegar liðið sótti bæði stigin í Garðabæinn í 17.umferð Olís-deildar karla í dag með eins marks sigri í spennuþrungnum leik 26-27 eftir að hafa verið 14-13 undir í hálfleik. Stjarnan fékk tækifæri til að jafna metin í loka sókninni en skot Benedikts Marinós Herdísarsonar fór yfir markið úr upplögðu færi. Eins og Stjarnan hóf leikinn vel mættu þeir illa til leiks í seinni hálfleik og skoruðu gestirnir sex fyrstu mörk seinni hálfleiks og voru skyndilega komnir fimm mörkum yfir 14-19. Selfoss náði mest sex marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 15-21. Selfoss komst í 27-23 þegar rúmlega sex mínútur voru eftir af leiknum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar tók leikhlé í kjölfarið en Selfyssingar skoruðu ekki fleiri mörk í leiknum og Stjarnan fékk haug af tækifæri til að skora fleiri mörk. Meðal annars mistókst Starra Friðrikssyni að skora úr vítakasti og þá fékk Jón Ásgeir Eyjólfsson dauðafæri á línunni sem Alexander Hrafnkelsson varði. Tryggvi Sigurberg Traustason var markahæstur allra með sjö mörk fyrir Selfoss og Hannes Höskuldsson og Sölvi Svavarsson komu næstir með sex mörk. Daníel Karl Gunnarsson og Hans Jörgen Ólafsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Stjörnuna. Með sigrinum fór Selfoss upp fyrir Stjörnuna í deildinni og eru komnir í 8.sætið með 11 stig á meðan Stjarnan er í því 9. með 10 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.