Bernard Kristján Darkoh (Sævar Jónasson)
ÍR hafði betur með fimm mörkum gegn HK í lokaleik 17.umferðar Olís-deildar karla. Annar sigur ÍR í deildinni í vetur staðreynd en liðið var fjórum stigum frá umspilssætinu fyrir leikinn í kvöld. Baldur Fritz Bjarnason fór á kostum í fyrri hálfleik og endaði með 10 mörk í leiknum fyrir ÍR í 36-31 sigri liðsins en ÍR var 19-15 yfir í hálfleik. Liðin skiptust á að forystuna fyrsta korterið en ÍR tóku völdin um miðbik fyrri hálfleiks og skoruðu þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiksins og komust í 19-15. ÍR hélt uppteknum hætti í byrjun seinni hálfleiks og komust mest sjö mörkum yfir í stöðunni 28-21. Þá var eins og stressið tæki völdin hjá ÍR-ingum sem eru sennilega lítið sjálfstraust og náðu HK-ingar að saxa á forskotið. HK náði þessu minnst niður í tvö mörk í stöðunni 31-29 en lengra komust þeir ekki og lokatölur 36-31 ÍR í vil. ÍR er þar með komið með sjö stig, tveimur stigum á eftir Þór sem er í 11.sætinu en Þór er með betri innbyrðis stöðu á milli félaganna. HK er áfram í 10.sæti deildarinnar með 10 stig eftir tapið en þeir eru með jafn mörg stig og Stjarnan. Selfoss er síðan í 8.sætinu með 11 stig eftir sigur á Stjörnunni í gær. Róbert Snær Örvarsson var næst markahæstur í liði ÍR með sex mörk en Alexander Ásgrímsson kom með frábæra innkomu í markið hjá ÍR og endaði með tólf varða bolta. Hjá HK var Andri Þór Helgason markahæstur með sjö mörk og Haukur Ingi Hauksson skoraði sex mörk. Markvarslan hjá HK var ekki upp á marga fiska.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.