Össur Haraldsson (Brynjólfur Jónsson)
Haukar tóku á móti Eyjamönnum á Ásvöllum í dag í 17.umferð Olís deildar karla. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en voru ÍBV alltaf skrefinu á undan og gekk Haukum illa að finna leið framhjá Petar Jokanovic markamanni ÍBV í dag sem var frábær. ÍBV leiddi með tveim mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik, 11-13. Haukar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og voru búnir að jafna leikinn í 13-13 eftir eina mínútu. Eyjamenn tóku þá aftur við sér og náðu þriggja marka forskoti og hélt Petar uppteknum hætti frá því í fyrri hálfleik og varði nánast allt sem kom á mark Eyjamanna. Haukar náðu að jafna leikinn aftur þegar um 12 mínútur voru eftir af leiknum og allt stefndi í æsipennandi lokamínútur. Grétar Ari markvörður Hauka hrökk í gang undir lok leiksins og varði 2 víti frá Degi Arnarsyni á nokkrum sekúndum en ÍBV náðu alltaf sóknarfrákastinu. Lokasekúndur leiksins voru æsispennandi og fékk Daníel Þór Ingason leikmaður ÍBV tveggja mínútna brottvísun þegar 40 sekúndur voru eftir. Haukar tóku leikhlé með 28 sekúndur og klukkunni og stilltu upp í lokasóknina. Petar hélt uppteknum hætti og varði skotið með 10 sekúndur eftir og ÍBV snöggir að taka leikhlé. Dagur Arnarson gerði sér svo lítið fyrir og skoraði flautumark og tryggði ÍBV sigur, 28-29 algjörum spennutrylli. Haukar tóku þá ákvörðun að fara í maður á mann vörn í jöfnum leik og nýttu ÍBV sér það og tryggðu sér sigurinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.