Torsóttur sigur Hauka á Stjörnunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hans Jörgen Ólafsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Stjarnan tók á móti Haukum í Garðabænum í kvöld í 18.umferð Olís deildar karla.

Heimamenn voru í leit að sínum fyrstu stigum á þessu ári meðan Haukar voru í toppbaráttunni.

Haukar byrjuðu leikinn betur og voru komnir með fjögurra marka forskot í upphafi leiksins, 2-6. Heimamenn unnu sig þó hægt og rólega inn í leikinn og voru búnir að minnka forskotið í 11-13 þegar flautað var til hálfleiks.

Haukum gekk illa að slíta sig frá Stjörunni í kvöld og fóru illa með fjölda vítakasta. Þeir náðu mest að koma sér þrem mörkum yfir í síðari hálfleik en Stjarnan minnkaði muninn alltaf jafn harðan niður í eitt mark. Gífurlega spenna var undir lokin þegar munurinn var einunig seitt mark 25-26 en Haukar náðu að skora úr síðustu sókn sinni og tryggja sér tveggja marka sigur 25-27.

Jóel Bernburg var markahæstur Stjörnunnar með 7 mörk í kvöld og hjá Haukum var Freyr Aronsson markahæstur með 6 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top