Stymmi spáir í spilin (
Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 19.umferð fari í Olís deild karla. Afturelding – Stjarnan (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Afturelding Bæði lið í leit að sínum fyrsta sigri á árinu 2026. Áttu bæði sína skárastu leiki í síðustu umferð. Mikil meiðsli verið að herja á bæði liðin en ég held að Afturelding hafi sigur af hólmi meðan Stjarnan þurfi ennþá að bíða eftir sínum fyrsta sigri árið 2026. Haukar – FH (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar Stórleikur umferðinnar. Liðin sem mætast í undanúrslitum bikarkeppninnar. Bæði hafa átt góðu gengi að fagna í deildinni og eru í keppni um deildarmeistaratitilinn. Ég held að Haukarnir fái montréttinn í Hafnarfirði í þetta sinn, allavegna fram að bikarkeppni. Fram – HK (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Fram Liðin í 7 og 8 sæti deildarinnar að mætast. Fram voru flatir gegn ÍR og geta þakkað Breka Hrafni, markverði sínum fyrir stigin 2 meðan HK vann lífsnauðsynlegan sigur á Þór og komu sér aftur í 8.sætið. Fram munu fara með sigur af hólmi í miklum baráttuleik. ÍR – Valur (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur ÍR eru eflaust ennþá svekktir að hafa ekki unnið Fram í síðasta leik. Tækifærunum að halda sæti sínu í deildinni fer fækkandi og verða ÍR nauðsynlega að fara að sækja sigur. Hann kemur því miður ekki gegn Val en það mun verða nóg af mörkum í þessum leik þar sem bæði lið elska að keyra upp hraðann. Selfoss – Þór (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: Selfoss Gífurlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Selfoss geta gert alvöru atlögu að sæti í úrslitakeppninni meðan Þór getur mögulega komið sér upp úr umspilssæti með sigri. Selfoss hafa verið gífurlega agaðir og góðir undanfarið og ég held að Carlos verði með allt upp á 10 í þessum leik og vinni enn einn sigurinn. KA – ÍBV (Sunnudagur 16:00) / Sigurvegari: KA Alvöru landsbyggðarslagur á sunnudaginn. KA töpuðu gegn Val í siðustu umferð meðan ÍBV eru með 6 sigurleiki í síðustu 7 deildarleikjum. KA líður vel á heimavelli og munu stöðvar sigurgöngu ÍBV á sunnudaginn og vinna þriggja marka sigur fyrir norðan með Ágúst Elí í fantaformi í markinu. 18.umferð (5.réttir)
17.umferð (2 réttir)
16.umferð (5 réttir)
15.umferð (5.réttir)
14.umferð (3 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (4 réttir)
11.umferð (4 réttir)
10.umferð (5 réttir)
9.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
7.umferð (3 réttir)
6.umferð (2 réttir)
5.umferð (3.réttir)
4.umferð (4.réttir)
3.umferð (5 réttir)
2.umferð (4 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.