Kristján Ottó Hjálmsson - Afturelding (Egill Bjarni Friðjónsson)
Afturelding og Stjarnan mættust í myntkaup höllinni í Mosfellsbæ í kvöld. Nokkuð jafnt var á milli liða í fyrri hálfleik, Stjarnan sýndi góða frammistöðu og náði þriggja marka forystu á 22. mínútu. Afturelding náðu að jafna fyrir hálfleik og skyldu liðin jöfn þegar leiktíminn var stöðvaður, hálfleikstölur 15-15. Jafnræði var sömuleiðis á milli liðanna beggja í síðari hálfleik, þegar um 10 mínútur voru eftir var Stjarnan komin með tveggja marka forystu en Afturelding náði að endingu að sigla heim eins markar heimasigri, lokatölur 29-28. Benedikt Marinó Herdísarson og Hans Jörgen Ólafsson voru atkvæðamestir hjá Stjörnunni, Benedikt með 7 mörk úr 9 skotum ásamt 6 stoðsendingum. Hans var markahæstur í leiknum með 10 mörk og var sömuleiðis með 3 stoðsendingar. Oscar Sven Leithoff Lykke átti góða frammistöðu fyrir Aftureldingu, var með 100% skotnýtingu þar sem að hann skoraði 5 mörk úr 5 skotum og var sömuleiðis með 4 stoðsendingar. Í marki Stjörnunnar var verðandi leikmaður Lübeck-Schwartau, Adam Thorstensen, með 13 varða bolta eða um 31% vörslu. Eftir þennan leik er Afturelding komið í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig. Stjarnan situr fastast í tíunda sæti deildarinnar með 10 stig. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.