Valur sótti tvö stig í Skógarselið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Róbert Snær Örvarsson ((Egill Bjarni Friðjónsson)

Valsmenn áttu ekki í miklum vandræðum með ÍR í kvöld en eftir að hafa farið hægt af stað í leiknum settu þeir í næsta gír eftir tuttugu mínútna leik og eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda, lokatölur 31-41 fyrir Val í miklum markaleik.

Gunnar Róbertsson var markahæstur Vals með níu mörk og Arnór Snær Óskarsson kom næstur með átta. Björgvin Páll Gústavsson átti flottan leik í markinu og varði tuttugu skot.

Hjá heimamönnum var Bernard Darkoh markahæstur með sex mörk og næstur á eftir honum kom Róbert Snær Örvarsson með fimm. Alexander Ásgrímsson varði ellefu skot í markinu.

Valur eiga deildarmeistaratitilinn næstan vísan en þeir eru með þriggja stiga forskot á FH þegar þrjár umferðir eru eftir. ÍR eru áfram neðstir og útlitið áfram dökkt í neðra Breiðholti.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top