Eiður Rafn Valsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Fram tók á móti HK í kvöld í Olís deild karla og vann góðan sigur, lokatölur urðu 33-29 fyrir heimamenn. Framarar voru fljótir að ná forystu í leiknum og sama hvað HK reyndu þá náðu þeir aldrei að jafna metin þrátt fyrir að komast nokkrum sinnum nálægt því. Heimamenn höfðu sex marka forystu í hálfleik og gestirnir náðu að minnka muninn í tvö mörk þegar 10 mínútur voru eftir en nær komust þeir ekki að þessu sinni. Markahæstir hjá Fram voru þeir Ívar Logi Styrmisson og Viktor Sigurðsson en báðir skoruðu sex mörk og Dánjal Ragnarsson kom næstur með fjögur. Breki Hrafn Árnason var mestan part leiksins í marki liðsins og átti góðan leik en hann varði fjórtán skot eða 38% markvarsla. Hjá gestunum voru þrír menn með sjö mörk en það voru þeir Andri Þór Helgason, Haukur Ingi Hauksson og Hjörtur Ingi Halldórsson. Allir þrír markmenn liðsins komu við sögu en Jovan Kukobat var skástur þeirra með sjö varin eða 37% markvarsla. Framarar eru áfram í sjöunda sæti en þeir jöfnuðu KA að stigum og eru aðeins stigi á eftir ÍBV á meðan HK sitja í sætinu fyrir neðan en geta dottið niður um sæti ef Selfoss vinnur Þór. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.