Hannes Höskuldsson var frábær í liði Selfoss í vetur sem kom öllum sérfræðingum á óvart og héldu sæti sínu í deildinni sem nýliðar. Hannes sýnir á sér bakhliðina í dag. Fullt nafn: Hannes Höskuldsson Gælunafn: Oftast bara Hannes, kemur fyrir að ég sé kallaður Nesi Aldur: 26 Hjúskaparstaða: Lausu Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2018 einhvertíman Uppáhalds drykkur: Kristall Uppáhalds matsölustaður: Menam Selfossi eða Krúsin Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Psych Uppáhalds tónlistarmaður: Ingó og Skímó Uppáhalds hlaðvarp: Dr. Football Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Helga systir eða Helga Rúv eins og hún vill láta kalla sig Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Taka stöðuna á næstu þjóðarhöll Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: 3-4 tíma Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliðason og Einar Ottó Antonsson Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Meeting today? Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Fjölni Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Aron Pálmarsson Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið með marga frábæra þjálfara og erfitt að velja á milli, en Gísli Felix og Örn Þrastar ef ég verð að velja. Carlos fær líka shout, hann hefur gefið mér mikið traust. Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Óðinn Þór, leiðinlega góður Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Í handboltanum var það Guðjón Valur Helsta afrek á ferlinum: Íslandsmeistaratitillinn 2019 og síðan stendur umspilið í fyrra líka upp úr Mestu vonbrigðin: Þegar við féllum fyrir tveimur árum, tapið á móti KA í final 4 2022 var líka helvíti súrt Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Árni Bragi Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Ragnar Hilmarsson og Hulda Hrönn Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Gidsel Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Kannski ekki breyting á reglum, en væri til í að vera með “coach challenge” í leikjum sem eru með VAR Þín skoðun á 7 á 6: Finnst það leiðinlegt, en á meðan reglurnar leyfa það þá er lítið hægt að segja Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Man eftir einhverjum landsleik árið 2006 að ég held, þegar Einar Hólmgeirs fékk vígalega kúlu á hausinn. Myndi halda að það sé fyrsta minningin mín af handbolta. Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Adidas Stabil Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Sverri Pálsson, Gunnar Kára og Einar Sverrisson. Einar og Sverrir eru hávaxnir, fyndnir og fluggáfaðir, Gunnar er síðan nautsterkur sem gæti nýst vel, helvíti gaman að honum líka en ekki jafn gáfaður, því miður. Hvaða lag kemur þér í gírinn: “Heima” eða “Einn með þér” með Skímó Rútína á leikdegi: Stuttar lyftingar fyrri part dags, borða og drekka vel yfir daginn, síðan er alltaf MS grjónagrautur og banani 90 mínútum fyrir leik Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Skarphéðinn Steinn myndi blómstra í Love Island Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Get leyst Rubiks kubb á undir mínútu Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hákon Garri, helvíti skemmtilegur í klefanum. Sérstaklega þegar hann fer á flug með Elvari frænda sínum, frábært comedy Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Messi hvort ég megi fá mynd með honum Eldri bakhliðar: Bakhliðin: Ævar Smári Gunnarsson Bakhliðin: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Bakhliðin: Embla Steindórsdóttir Bakhliðin: Sonja Lind Sigsteinsdóttir Bakhliðin: Dagur Fannar Möller Bakhliðin: Harpa Valey Gylfadóttir Bakhliðin: Alexandra Ósk Viktorsdóttir Bakhliðin: Elís Þór Aðalsteinsson Bakhliðin: Kristófer Tómas Gíslason Bakhliðin: Haukur Ingi Hauksson Bakhliðin: Tinna Valgerður Gísladóttir Bakhliðin: Lydía Gunnþórsdóttir Bakhliðin: Magnús Dagur Jónatansson Bakhliðin: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir Bakhliðin: Arna Karitas Eiríksdóttir Bakhliðin: Matthildur Lilja Jónsdóttir Bakhliðin: Jökull Blöndal Björnsson Bakhliðin: Skarphéðinn Ívar Einarsson Bakhliðin: Sigurður Dan Óskarsson Bakhliðin: Breki Hrafn Árnason Bakhliðin: Bakhliðin: Lilja Ágústsdóttir Bakhliðin: Ísak Logi Einarsson Bakhliðin: Garðar Ingi Sindrason Bakhliðin: Bakhliðin: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Bakhliðin: Dagur Árni Heimisson Bakhliðin: Baldur Fritz Bjarnason Bakhliðin: Elín Rósa Magnúsdóttir

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.