
Valur er Íslandsmeistari tímabilið 2025/2026 eftir ótrúlegan spennutrylli í oddaleik Vals og FH sem fram fór í Valsheimilinu í kvöld. Valur var töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komst meðal annars í sex marka forystu í stöðunni 16-10 og fékk tækifæri að koma þessu í sjö mörk en mistókst það og FH-ingar gengu á lagið og minnkuðu muninn í fjögur mörk fyrir hálfleik í stöðunni 16-12. FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn eins og þeir enduðu þann fyrri og skoruðu þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks og breyttu stöðunni í 16-15. FH-ingar jöfnuðu síðan metin í stöðunni 19-19 en FH komst hinsvegar aldrei yfir í leiknum. Á síðustu mínútum leiksins voru Valsarar hinsvegar skrefinu á undan og náðu góðum kafla í stöðunni 21-21 og komust þremur mörkum yfir aftur. Lokamínúturnar voru hinsvegar spennuþrungnar og fékk FH tækifæri til að jafna metin í loka sókninni eftir að Daníel Freyr Andrésson varði vítakast frá Arnóri Snæ í síðustu sókn Vals. FH-ingar náðu hinsvegar ekki skoti á markið í lokasókninni og eins marks sigur Vals staðreynd, 27-26. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í liði Vals í leiknum með níu mörk þar af fimm úr vítaköstum, Magnús Óli og Bjarni í Selvindi skoruðu fjögur mörk hvor. Hjá FH var Ómari Darri Sigurgeirsson stórkostlegur með níu mörk en Jón Bjarni Ólafsson kom næstur með fjögur mörk. Björgvin Páll var með átta varin skot í marki Vals, þar af eitt skot í seinni hálfleik en Jón Þórarinn varði tíu skot og Daníel Freyr tvö. Til hamingju Valur! Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.