Lið Elmars hótað sex stiga frádrætti – Grunur um blekkingar í leyfisferlinu
Nordhorn Lingen

Þýska 2.deildarliðið HSG Nordhorn-Lingen sem Elmar Erlingsson leikur með, stendur frammi fyrir verulegum afleiðingum áður en nýtt tímabil í þýsku 2. deildinni hefst.

Handknattleikssamband þýsku deildarinnar, HBL, hefur hótað félaginu sex stiga frádrætti vegna verulegs misræmis á milli þeirra upplýsinga sem félagið lagði fram í leyfisferlinu í vor og stöðunnar sem nú er uppi.

Íslendingafélag glímir við alvarlegan fjárhagsvanda

Nordhorn-Lingen hefur átt í miklum fjárhagsvandræðum að undanförnu og greindi félagið frá því fyrir þremur dögum að það væri enn í „fjárhagslega krefjandi stöðu“. HSG Krefeld/Niederrhein, sem lék í sömu deild á síðustu leiktíð, hefur jafnframt varpað fram þeim möguleika að félagið hafi mögulega blekkt leyfisnefndina þegar leyfið var veitt.

HBL greindi frá því í dag að verulegt misræmi væri á milli þeirra upplýsinga sem Nordhorn lagði fram í leyfisferlinu í vor og þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir.

Þrjú skilyrði sem þarf að uppfylla þegar í stað

Leyfisnefnd HBL hefur sett félaginu þrjú skilyrði sem það þarf að uppfylla með tafarlausum hætti.

Í fyrsta lagi þarf Nordhorn að sýna fram á að hægt sé að brúa það lausafjárbil sem hefur verið greint í rekstri félagsins. Í öðru lagi þarf félagið að skila mánaðarlega inn áætlunum um lausafé og rekstrarafkomu út allt tímabilið 2026/27. Þriðja skilyrðið snýr að launakostnaði. HBL hefur sett takmörk á útgjöld Nordhorn vegna leikmannahópsins og ný leikmannakaup verða aðeins heimil með sérstöku samþykki leyfisnefndarinnar.

Þá hefur Nordhorn verið tilkynnt að til standi að draga sex stig af liðinu á tímabilinu 2026/27. Félagið fær þó tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Málið hefur vakið mikla athygli í þýskum handknattleik undanfarna daga. Ein helsta spurningin sem hefur verið uppi er hvernig Nordhorn gat fengið keppnisleyfi fyrir nokkrum mánuðum síðan en stendur nú frammi fyrir verulegum fjárhagsvandræðum.

HBL segir að ákvörðun leyfisnefndarinnar byggi á því að, miðað við þá vitneskju sem liggur fyrir í dag, séu veruleg frávik frá þeim upplýsingum sem HSG Nordhorn lagði fram í leyfisferlinu fyrir tímabilið 2026/27.

Ekki er ljóst á þessu stigi hvort Nordhorn hafi í raun veitt rangar eða villandi upplýsingar við umsókn um keppnisleyfi. Það gæti þó skýrst á næstu dögum þegar félagið hefur fengið tækifæri til að svara ásökununum og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

HBL hefur ekki gefið frekari upplýsingar um málið vegna trúnaðar sem ríkir um leyfisferlið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top