Ortega framlengir við Evrópumeistarana
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Carlos Ortega hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við spænska stórveldið Barcelona og verður við stjórnvölinn hjá félaginu til sumarsins 2031. Fyrri samningur hans átti að renna út næsta sumar.

Ortega tók við Barcelona sumarið 2021 eftir að hafa þjálfað Hannover-Burgdorf í Þýskalandi. Árangurinn hefur verið glæsilegur en hann hefur stýrt liðinu til þriggja Evrópumeistaratitla á fimm árum, árin 2022, 2024 og 2026.

Barcelona er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor. Liðið hefur jafnframt verið nær ósigrandi í spænska handboltanum undanfarin ár og unnið alla stærstu titlana þar í landi undir stjórn Ortega.

Íslensku landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson leika með Barcelona. Viktor Gísli framlengdi sjálfur samning sinn við félagið í sumar og er nú samningsbundinn því til ársins 2029.

Ortega lék sjálfur með Barcelona á árunum 1994 til 2005. Ef hann klárar nýja samninginn verður hann búinn að stýra liðinu í tíu ár, auk þeirra ellefu ára sem hann lék með félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top