Rangt hreinsiefni hafði áhrif á æfingu Einars Þorsteins
Tom Weller / AFP

Óvenjuleg uppákoma varð hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Hamburg í vikunni þegar liðið þurfti að færa æfingu sína með skömmum fyrirvara. Ástæðan var sú að gólf æfingahússins hafði verið þrifið með röngu hreinsiefni og var orðið svo hált að ekki var talið öruggt að æfa þar.

Íslenski handknattleiksmaðurinn Einar Þorsteinn Ólafsson leikur með Hamburg sem hefur átt erfitt uppdráttar í þýsku Bundesligunni í upphafi tímabilsins.

Samkvæmt þýska miðlinum Bild uppgötvaðist vandamálið á fimmtudaginn þegar Torsten Jansen, þjálfari Hamburg, mætti í íþróttahúsið í Volkspark um þremur klukkustundum áður en æfing átti að hefjast. Gólfið hafði verið þrifið með röngu efni og var orðið svo hált að ómögulegt var að halda æfinguna þar.

Jansen þurfti því að flytja æfinguna yfir í annað íþróttahús í nágrenninu.

„Þetta er meira en pirrandi, sérstaklega þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist,“ sagði Jansen við Bild.

Uppákoman kemur á afar óheppilegum tíma fyrir Hamburg sem hefur glímt við talsverð meiðslavandræði á fyrstu vikum tímabilsins. Moritz Sauter sleit krossband í hné og verður frá keppni út tímabilið. Þá hafa fyrirliðinn Elias Kofler og markvörðurinn Leon Nowottny einnig glímt við meiðsli.

Þrátt fyrir þetta vann Hamburg kærkomandi útisigur gegn Bietigheim í þýsku Bundesligunni í gær 30-35 en Hamburg er í 14.sæti deildarinnar með fimm stig eftir erfiða byrjun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top