Jovica Nikolić, leikmaður króatíska stórliðsins Zagreb, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann í Evrópukeppnum eftir gróft brot á þýska landsliðsmanninum Juri Knorr í leik Zagreb gegn Álaborg í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Atvikið átti sér stað í síðari hálfleik þegar Nikolić sparkaði í klof Knorr og fékk í kjölfarið beint rautt spjald eftir myndbandsskoðun dómara. Sjáðu þegar leikmaður Zagreb sparkaði í klofið á Knorr Aganefnd Handknattleikssambands Evrópu, EHF, tók málið til skoðunar og hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið sérstaklega gróft og hættulegt. Nikolić hefur því verið úrskurðaður í tveggja leikja bann og missir af næstu tveimur leikjum Zagreb í Meistaradeild Evrópu. Zagreb mætir Paris Saint-Germain á morgun, miðvikudag, áður en liðið leikur gegn Celje 28. október. Álaborg vann leikinn 34-33 í miklum spennuleik þar sem Knorr skoraði sex mörk fyrir danska liðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.