Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 10.umferð fari í Olís deild karla. Afturelding – ÍBV (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: Afturelding Fyrsti leikurinn í umferðinni eftir landsleikjahlé. Það verður spennandi að sjá hvort liðin séu búin að endurheimta eitthvað af leikmönnum úr meiðslum og þá sérstaklega ÍBV sem voru þunnskipaðir fyrir landsleikjahlé. Afturelding hefur verið sterkt á heimavelli í vetur og ég held það verði engin breyting á í kvöld. Þeir munu klára ÍBV nokkuð þægilega sem kann að koma einhverjum lesendum á óvart. Haukar - Þór (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar FH - Valur (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Valur Fram - HK (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Fram Liðin eru jöfn af stigum en mig grunar að stemmningin í búningsherbergjum liðanna sé mjög ólík með gengi þeirra. Fram hafa vonandi nýtt tímann vel í fríinu og þjappað sér vel saman. Fáum við að sjá Andrew Wisman í hóp hjá HK í kvöld? Fólk heldur eflaust ég sé ruglaður núna en ég ætla spá Fram sigri, ég hef trú á því að Einar Jóns sé búinn að stappa stálinu í sína menn og markvarslan detti inn í kvöld. Selfoss – KA (Föstudagur 18:00) / Sigurvegari: KA Selfyssingar hafa átt erfitt uppdráttar í vetur meðan KA hafa verið virkilega flottir þó Haukarnir hafi skellt þeim á jörðina í síðustu umferð, en Haukarnir gera það við alla. Þetta er þokkalegasta ferðalag sem KA menn gætu verið stífir í byrjun leiks en leið og þeir mýkjast þegar líður á leikinn munu þeir sigla fram úr og vinna nokkuð þægilegan sigur með Ágúst Elí í miklu formi í markinu hjá sér. Víkingur – Stjarnan (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: Víkingur 1.umferð (6 réttir)
Ég fer að verða búinn með orðin mín í Haukana. Þórsarar hafa valdið mér vonbrigðum í vetur meðan Haukarnir hafa verið algjör andstæða. Ætla ekki að eyða óþarfa orðum í þenann leik. Haukar klára þetta auðveldlega.
Stórleikur umferðinnar er einvígi liðanna sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Fulltrúar okkar í Evrópudeildinni í vetur. Þetta er leikur sem allir ættu að tryggja sér áskrift af Handboltapassanum fyrir. Valsmenn hafa verið á góðir undanfarið meðan FH hafa verið í örlitlu basli með varnarleikinn sinn. Valur mun sækja tvo punkta í Kaplakrika í kvöld þar sem úrslitin ráðast þegar 30 sekúndur eru eftir af leiknum.
Bræður munu berjast á sunnudaginn. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings mætir litla bróður, Sverri Eyjólssyni þjálfara Stjörnunnar. Víkingar hafa byrjað tímabilið virkilega vel og eru komnir með 6 stig sem er meira en elstu menn muna hvenær Víkingar voru með svo mörg stig í efstu deild í nóvember. Þetta mun verða hörku leikur tveggja jafnra liða en mig grunar að Víkingar muni hafa þetta á endanum og vinna tveggja marka sigur og Aðalsteinn verði með montréttinn í matarboðunum um jólin.
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)
7.umferð (4 réttir)
8.umferð (5 réttir)
9. umferð (4 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.