Stymmi spáir í spilin: 8. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 8.umferð fari í Olís deild karla.

Afturelding – Þór (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: Afturelding
Afturelding tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í síðsta leik og missti tvo lykilmenn í meiðsli meðan Þór komust loksins á sigurbraut eftir brösugt gengi í deildinni. Afturelding býr að því að hafa djúpan hóp en þeir munu þurfa breyta uppleggi sínu talsvert með Harra á hliðarlínunni. Einar Baldvin mun eiga stórleik og tryggja Aftureldingu tveggja marka sigur á Þór á heimavell í kvöld.  

Stjarnan - Valur (Þriðjudagur 19:15) / Sigurvegari: Valur
Valsmenn verið á mikilli siglingu undanfarið eftir að hafa náð vopnum sínum í þessum Evrópu verkefninum. Gunnar Róbertsson mun halda áfram að fljúga með himinskautum og er eini möguleiki Stjörnumanna að fá eitthvað út úr þessum leik að stoppa hann. Hvort það sé síðan hægt er allt annar handleggur. Valur mun fara í Garðabæinn og vinna nokkuð þægilegan sigur á Stjörnunni.     

Selfoss - Fram (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: Fram
Ef einhver hefði sagt mér í ágúst að 27.október yrði ég að horfa á Fram í botnslag á Selfossi hefði ég sennilega látið hitamæla viðkomandi. En hér erum við engu að síður. Fram verið að glíma við mikil meiðsli undanfarið en samkvæmt okkar heimilidum verða Marel og Dagur Fannar klárir í bátanna hjá Fram í kvöld. Selfoss hefur ekki ennþá unnið leik á tímabilinu. Síðasti sigurleikur þeirra kom 8.febrúar á þessu ári. Því miður fyrir Selfoss þurfa þeir að bíða lengur eftir sigrinum og Fram kemst aftur af sigurbraut. Coolbet býður 1.77 í stuðul á Fram sigur í þessari umferð sem ég mun taka.    

FH - KA (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: FH
Liðin í öðru og þriðja sæti að mætast. KA gerði ekki góða ferð í Hafnarfjörðinn í fyrra þar sem FH lék við hvern sinn fingur og rúllaði yfir þá en það var í fyrra! Þetta mun vera hörku leikur tveggja toppliða í deildinni og mun KA þurfa á stórleik frá Ágústi Elí á hans gamla heimavelli. Þetta mun verða naglbítur fram á síðustu mínútu en breiddin hjá FH mun tryggja þeim sigurinn í þessum leik.

Haukar – HK (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar
Hvað get ég sagt meira um Haukana á þessu stigi málsins? Þeir hafa ekki tapað leik á tímabilinu og kláruðu Evrópuleikina fagmannlega um helgina án Freys sem fékk högg á lærið snemma í fyrsta leiknum. Verður hann klár á morgun? Hvort sem hann er klár eða ekki mun það ekki koma að sök og Haukar munu klára HK þægilega. HK á leik gegn Selfoss um helgina sem þeir eiga talsvert meiri möguleika í og með tvo leiki í vikunni ætla ég að tippa á að þeir geri meira í þeim leik en á morgun gegn Haukum.

Víkingur – ÍBV (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: ÍBV
Víkingar fá Eyjamenn í heimsókn á fimmtudaginn. Víkingar unnu flottan sigur í síðustu umferð á Selfossi og ef þeir ætla sér að vera ekki í bullandi fallbaráttu í ár verða þeir að vinna Eyjamenn á fimmtudaginn. ÍBV eru mestu ólíkindartól deildinnar þegar kemur að því að tippa á, ég veit nákvæmlega ekkert hvað ég mun fá frá þeim í hverri umferð. Ég ætla hins vegar að taka séns og tippa á að þeir fari með tvö stig aftur heim til Eyja.

1.umferð (6 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)
5.umferð (5 réttir)
6.umferð (4 réttir)
7.umferð (4 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top