Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 10.umferð fari í Olís deild kvenna. HK – Haukar (Laugardagur 13:30) / Sigurvegari: Haukar HK hafa sett saman góða leiki undanfarið og fór til að mynda áfram í bikarkeppninni í vikunni. Haukar töpuðu sínum fyrstu stigum um síðustu helgi þegar liðið gerði jafntefli við ÍBV. Það var þó einu stigin sem Haukar tapa fyrir landsleikahléið þar sem þær byrja þessa umferð á morgun á sigri gegn HK. KA/Þór – ÍBV (Laugardagur 15:30) / Sigurvegari: ÍBV ÍBV tapaði óvænt gegn Stjörnunni í tvíframlengdum leik í vikunni meðan KA/Þór fóru með fámennt lið og kláruðu Fjölni þægilega. ÍBV vilja eflaust hefna fyrir tapið í vikunni og munu mæta dýrvitlausar til leiks fyrrir norðan. Sandra Erlings og Andrea Jacobs munu fara fyrir liði ÍBV sem mun vinna nokkuð þægilegan sigur. Selfoss – Valur (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: Valur Selfoss unnu óvæntasta sigur tímabilsins þegar þær unnu Val á heimavelli í 1.umferð Olís deildarinnar. Valskonur eru eflaust ekki búnar að gleyma því og ætla sér að hefna fyrir þær ófarir. Valur mun mæta með Hafdísi í broddi fylkingar austur fyrir fjall og vinna Selfyssinga nokkuð örugglega og Hafdís eiga stórleik í marki Vals. Grótta – Fram (Sunnudagur 14:00) / Sigurvegari: Fram Eldgamla saman með deild og bikar í sömu vikunni. Fram rúllaði yfir Gróttu fyrr í vikunni í Powerade bikarnum og því ætti Grótta væntanlega að vinnan þennan leik er það ekki? Nei ég held því miður ekki. Grótta hafa verið ótrúlega daprar undanfarið og munu þurfa að nýta landsleikjahléið til þess að finna út úr því hvað er að plaga þær. Fram mun mæta á Nesið í annað sinn í vikunni og vinna þægilegan sigur á heimakonum. Stjarnan – ÍR (Sunnudagur 18:30) / Sigurvegari: ÍR Stjarnan mæta eflaust til leiks fullar af sjálfstrausti eftir að hafa slegið ÍBV út úr bikarkeppninni fyrr í vikunni eftir tvíframlengdan leik. ÍR gerði góða ferð í Mosfellsbæinn og vann topp lið Grill 66 deildarinnar örugglega. Liðin mættust í fyrstu umferð deildinnar og var leikurinn að mestu leyti jafn. Ég reikna með sömu uppskrift í þessum leik en ÍR mun hafa betur með einu marki . 1. umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4. umferð (5 réttir)
5. umferð (3 réttir)
6. umferði (4 réttir)
7. umferði (4 réttir)
8. umferð (5 réttir)
9. umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.