Er ekki orðið fullt í þessum reynslubanka?
Ina FASSBENDER / AFP

Rakel Dögg Bragadóttir telur ekki hægt að gera kröfu um að íslenska kvennalandsliðið komist upp úr riðli sínum á Evrópumótinu í desember. Hún segir riðil Íslands gríðarlega sterkan og að leikstíll mótherjanna henti íslenska liðinu illa. Hörður Magnússon velti hins vegar fyrir sér hvort ekki væri kominn tími til að landsliðið færi að uppskera eftir reynslu síðustu stórmóta.

Frammistaða íslenska kvennalandsliðsins á komandi Evrópumóti var til umræðu í nýjasta þætti Handboltahallarinnar þar sem Hörður Magnússon spurði Rakel Dögg hvað teldist ásættanlegur árangur hjá íslenska liðinu.

Ísland leikur gegn Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember. Leikirnir fara fram í Oradea í Rúmeníu og tvö efstu lið riðilsins komast áfram í milliriðla.

„Þetta er gríðarlega sterkur riðill. Ég held að það sé ekki hægt að gera kröfur um að liðið fari upp úr þessum riðli. Ég held að þetta verði erfiðir og þungir leikir. Ég held að við séum enn eitt árið að horfa í það að liðið sé að setja eitthvað inn í reynslubankann,“ sagði Rakel Dögg. Hörður var ekki alveg sáttur við þá nálgun og spurði hvort ekki væri kominn tími til að íslenska landsliðið færi að nýta reynsluna sem safnast hefur á undanförnum stórmótum.

„Er ekki orðið fullt í þessum reynslubanka og þetta sé alltaf einhver upplifun?“ spurði Hörður.

Einar Ingi Hrafnsson tók undir að eðlilegt væri að vilja sjá íslenska liðið taka næsta skref en benti á að mótherjarnir í riðlinum væru erfiðir viðureignar.

„Þetta er þriðja mótið þar sem Elín Klara og Elín Rósa eru okkar vopn. Fyrir fram vill maður að núna fari maður að taka út úr reynslubankanum en það hefur hentað okkur illa að spila gegn austantjaldslöndum.“

„Þær eru sterkari en við höfum náð ágætis úrslitum gegn þjóðum sem eru nær okkur og henta okkur betur,“ bætti Einar Ingi við. Í lok umræðunnar benti Rakel Dögg á að besti árangur íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumóti frá upphafi væri 15. sæti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top