Þýski hornamaðurinn Tim Freihöfer hefur farið á kostum með Füchse Berlin undanfarna daga og skorað 29 mörk í aðeins tveimur leikjum. Frammistaða hans hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi og gæti sett aukna pressu á Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfara Þýskalands, fyrir heimsmeistaramótið í janúar. Freihöfer skoraði 14 mörk gegn Lemgo í þýsku Bundesligunni um síðustu helgi og setti þar með persónulegt markamet í deildinni. Fjórum dögum síðar gerði hann enn betur þegar hann skoraði 15 mörk í 36-33 sigri Füchse Berlin gegn Porto í Meistaradeild Evrópu. Freihöfer, sem er 23 ára gamall vinstri hornamaður varð heimsmeistari með U21 árs landsliði Þýskalands árið 2023 og hefur verið talinn einn efnilegasti vinstri hornamaður landsins. Samkeppnin um sæti í þýska landsliðinu er hins vegar gríðarlega hörð. Auk Freihöfer koma Rune Dahmke og Vincent Büchner til greina í stöðuna. Alfreð Gíslason hefur því úr mörgum sterkum leikmönnum að velja þegar kemur að því að velja landsliðshópinn fyrir HM. Freihöfer fær næsta tækifæri til að sýna sig og sanna þegar Füchse Berlin mætir Flensburg í stórleik þýsku Bundesligunnar á morgun. Haldi hann áfram að skora af sama krafti gæti Alfreð átt erfitt með að líta fram hjá honum þegar kemur að því að velja hópinn fyrir HM.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.