Það var nóg um að vera á Norðurlöndunum í dag en meðal annars eru Elverum áfram ósigraðir eftir flottan útisigur á Kolstad á meðan Sävehof unnu nauman sigur í kvennadeildinni í Svíþjóð. Elverum mætti Kolstad á útivelli í dag og gestirnir léku á alls oddi og unnu nokkuð þægilegan sigur, 25-37. Elverum eru því áfram í efsta deildarinnar með fullt hús stiga eftir sjö leiki, tveimur stigum á undan Runar sem hafa tapað einum leik. Tryggvi Þórisson var í liði Elverum en skoraði ekki mark í dag. Sandefjord hélt áfram góðu gengi sínu en þeir unnu sjö marka heimasigur á Follo, 32-25. Sigurjón Guðmundsson spilaði hluta leiksins í marki heimamanna og varði þrjú skot af þeim þrettán sem hann fékk á sig eða 23% markvarsla. Sandefjord eru í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex leiki. Í næstefstu deild kvenna í Danmörku töpuðu Rødovre með minnsta mun á heimavelli gegn AGF, 19-20. Inga Dís Jóhannsdóttir var í liði heimakvenna en skoraði ekki að þessu sinni. Rødovre situr í tíunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir sjö leiki. Lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro áttu ekki mikinn séns í Nordsjælland í dag en gestirnir töpuðu með átta mörkum, 36-28 en þrátt fyrir það átti Jóhannes Berg Andrason flottan leik fyrir gestina, hann skoraði níu mörk úr ellefu skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki. Benedikt Gunnar Óskarsson er hægt og bítandi að koma sér í betra leikform og hann skoraði eitt mark úr tveimur skotum og gaf eina stoðsendingu að auki. Holstebro hafa farið illa af stað á tímabilinu og sitja í tíunda sæti deildarinnar með aðeins sjö stig eftir tíu leiki. Að lokum unnu meistarar Sävehof nauman útisigur á Ystad í sænsku kvennadeildinni, 21-22 þar sem Elín Klara Þorkelsdóttir var sem fyrr í liði meistaranna, hún skoraði fjögur mörk úr fimm skotum en þar af eitt úr víti og fékk eina brottvísun að auki. Sävehof eru í öðru sæti deildarinnar ásamt fimm öðrum liðum með fjögur stig eftir þrjá leiki. Úrslit dagsins: Kolstad 25-37 Elverum Sandefjord 32-25 Follo Rødovre 19-20 AGF Nordsjælland 36-28 Holstebro Ystad 21-22 Sävehof

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.