Fengu miðann þegar dyrnar voru að lokast
Sævar Jónasson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst á morgun og hefur Handkastið hitað upp fyrir deildina og fjallað um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir Selfoss.

Síðasta tímabil:
Síðasta tímabil var mikið vonbrigða tímabil fyrir Selfyssinga en liðið endaði í neðsta sæti og féll því beint niður í Grill 66 deildina. Fyrir tímabilið flutti Katla María til Danmerkur og Perla Ruth spilaði einungis þrjá leiki með liðinu þar sem hún var barnshafandi. Liðið sótti nokkra útlendinga en það dugði því miður skammt enda skörðin stór.

Þjálfarinn:
Eyþór Lárusson hefur gert góða hluti með Selfoss liðið og hefur hann upplifað það að væri bæði með liðið í Olís og Grill deildinni. Eyþór hefur byggt upp góðan kjarna en ákveðin endurnýjun er að eiga sér stað núna og líklegt að ungar stelpur fái frekari tækifæri.

Breytingar:
Systurnar Mia og Kristin Syverud verða ekki áfram en þær yfirgáfu liðið þegar ljóst var að liðið myndi ekki spila í efstu deild og markvörðurinn Sara Reykdal fór yfir í Fjölni. Ljóst er að Selfoss liðið hefði örugglega reynt að styrkja sig á leikmannamarkaðnum en líkt og Perla Ruth fór yfir í viðtali við Vísi kom það ekki í ljós fyrr en fyrir örfáum dögum.

Lykilmenn:
Perla Ruth Albertsdóttir, Hulda Hrönn Bragadóttir, Harpa Valey Gylfadóttir

Fylgist með:
Hulda Hrönn Bragadóttir er ung og efnileg skytta. Hún er hávaxin og var hluti af íslensku U20 ára landsliðinu sem tók þátt á HM í Kína. Hún hefur verið að fá stærra hlutverk með Selfoss og mun líklega vera í lykilhlutverki hjá liðinu í vetur.

Framtíðin:
Eva Lind Tyrfingsdóttir er ungur örvhentur hornamaður sem hefur verið í kringum U18 ára landsliðið. Hún hefur vaxið mikið undanfarin ár og verður spennandi að sjá hana takast á við verkefnið í Olís deildinni.

Við hverju má búast:
Það er alveg viðbúið að Selfoss liðið verði í vandræðum í ár. Liðið missti frá sér tvo útlendinga og styrkti hópinn ekkert á móti. Þrátt fyrir það mun Perla Ruth snúa aftur á völlinn auk þess sem Harpa Valey er klár aftur í slaginn en hún spilaði lítið með liðinu í fyrra.

Sjá einnig:
Umfjöllun um kvennalið Fram
Umfjöllun um kvennalið Stjörnunnar
Umfjöllun um karlalið Hauka
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top