Harpa María Friðgeirsdóttir var frábær fyrir lið Fram í vetur og var meðal markahæstu leikmanna liðsins. Harpa María sýnir á sér bakhliðina í dag. Fullt nafn: Harpa María Friðgeirsdóttir Gælunafn: Harpovich við tilefni Aldur: 25 ára Hjúskaparstaða: Lausu Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: September 2017 á móti Stjörnunni úti Uppáhalds drykkur: Vatn + Fun light cherry þykkni Uppáhalds matsölustaður: Hraðlestin og Preppbarinn Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison Break Uppáhalds tónlistarmaður: Rihanna Uppáhalds hlaðvarp: Langa - hlaðvarp Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktok og Strava Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Ætlaði að segja Dorrit en hún er greinilega búin að unfollowa :/ Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Byrja á að skoða fjármálin og finna fleiri leiðir til að auka tekjur. Myndi svo efla samstarf milli sérsambanda t.d. tengt þekkingu á styrktarþjálfun, hlaupatækni, næringu… Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: 4-5klst Fyndnasti Íslendingurinn: Saga Garðars Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Hæ ég þarf að skreppa til dk að taka lokapróf 26.maí, kem heim morguninn 30.maí Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Val Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Alexandra Lacrabère á æfingu Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir þjálfarar! Bætti mig líklega mest með Einar Jóns við stýrið þannig segjum hann Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Daðey Ásta er óþolandi innan vallar en mikið ljúfmenni utan vallar Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Í handbolta var það Diddi frændi Helsta afrek á ferlinum: Vinna titla í tveimur mismunandi íþróttagreinum og keppa fyrir Ísland í báðum greinum stendur uppúr Mestu vonbrigðin: Að Danmerkur planið mitt gekk ekki nógu vel upp Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Tek Jóhönnu Margréti enda er hún með Fram-blóð í æðunum Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Arna Sif Jónsdóttir Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Nikola Karabatić og Katrine Lunde Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Þarf ekki að taka fríkastið nákvæmlega þar sem sóknarbrot verður heldur má taka það þar sem sóknarliðið sleppir boltanum. Búin að berjast fyrir þessu lengi án árangurs Þín skoðun á 7 á 6: Fínt en vil fá vestið aftur og sjá þá útileikmenn spreyta sig í marki af og til Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Fylgjast með ÓL 2008 Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Asics Sky Elite, væri samt til í Adidas Crazyflight 4 týpuna aftur RIP Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Andreas Wolf: Verja hópinn fyrir ýmsum hættum á eyjunni, Anna Vyakhireva: Útsjónarsöm og snögg sem nýtist í að veiða/finna mat, Mathias Gidsel: Gæti örugglega synt af eyjunni og sótt hjálp. Hvaða lag kemur þér í gírinn: Nóttin svört með Frikka Dór Rútína á leikdegi: Sofa nóg og borða nóg Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Sendi systurnar Írisi og Söru og fáum þá loksins gott dýfu content úr lauginni Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Get sofnað hvar og hvenær sem er Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Katrín kAnna og bara því hún er mikill meistari! Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er. Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja alla þjálfara í Olís kk afhverju enginn er að reyna fá Ihor? bestur í þessari deild Eldri bakhliðar: Bakhliðin: Inga Dís Jóhannsdóttir Bakhliðin: Tryggvi Sigurberg Traustason Bakhliðin: Ásdís Þóra Ágústsdóttir Bakhliðin: Gunnar Kári Bragason Bakhliðin: Ómar Darri Sigurgeirsson Bakhliðin: Patrekur Smári Arnarsson Bakhliðin: Guðmunda Auður Guðjónsdóttir Bakhliðin: Vigdís Arna Hjartardóttir Bakhliðin: Stefán Magni Hjartarson Bakhliðin: Sigurjón Bragi Atlason Bakhliðin: Ingvar Dagur Gunnarsson Bakhliðin: Ævar Smári Gunnarsson Bakhliðin: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Bakhliðin: Embla Steindórsdóttir Bakhliðin: Sonja Lind Sigsteinsdóttir Bakhliðin: Dagur Fannar Möller Bakhliðin: Harpa Valey Gylfadóttir Bakhliðin: Alexandra Ósk Viktorsdóttir Bakhliðin: Elís Þór Aðalsteinsson Bakhliðin: Kristófer Tómas Gíslason Bakhliðin: Haukur Ingi Hauksson Bakhliðin: Tinna Valgerður Gísladóttir Bakhliðin: Lydía Gunnþórsdóttir Bakhliðin: Magnús Dagur Jónatansson Bakhliðin: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir Bakhliðin: Arna Karitas Eiríksdóttir Bakhliðin: Matthildur Lilja Jónsdóttir Bakhliðin: Jökull Blöndal Björnsson Bakhliðin: Skarphéðinn Ívar Einarsson Bakhliðin: Sigurður Dan Óskarsson Bakhliðin: Breki Hrafn Árnason Bakhliðin: Bakhliðin: Lilja Ágústsdóttir Bakhliðin: Ísak Logi Einarsson Bakhliðin: Garðar Ingi Sindrason Bakhliðin: Bakhliðin: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín Bakhliðin: Dagur Árni Heimisson

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.